Heim / Ekta gisting og sport

Ekta fiskur hefur til leigu glæsilegt sumarhús í Vaðlaheiði með frábært útsýni yfir Akureyri. Húsið er fullbúið með vönduðum húsgögnum, heitum potti, 3 herbergjum með tvíbreiðum rúmum og svefnloft með 10 þykkum dýnum. Húsið leigist til viku eða meira í einu.
Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og starfsmannafélög

Við bjóðum einnig upp á möguleika til sjóstangaveiði á glæsilegum Sóma hraðfiskibát með reyndum skipstjóra við stýrið.
Við flökum aflann þinn í fiskverkun Ektafisks og sendum roð- og beinlaus flökin yfir í hið glæsilega eldhús Ekta rétta ehf. þar sem gerðir eru tilbúnir réttir fyrir þig til að borða í sumarhúsinu og hafa með heim.

Allar nánari upplýsingar fást í netfanginu gistingogsport@ektafiskur.is