Heim / Um Ekta fisk

imageFyrirtækið Ektafiskur ehf á Hauganesi við Eyjafjörð er löngu orðið landsþekkt fyrir framleiðslu sína á útvötnuðum og beinhreinsuðum saltfiski í neytendaumbúðum. Það er brautryðjandi í slíkri framleiðslu og eina fyrirtækið sem er að framleiða og dreifa slíkri vöru um allt land, bæði í verslanir og veitingahús, og einnig erlendis.

Fjölskyldan, sem hafði unnið við saltfiskverkun allt frá árinu 1940 undir heitinu Trausti sf. ákváðu að breikka starfsemi sína og hófu árið 1991 framleiðslu undir vörumerkinu Ektafiskur. Var það í fyrsta sinn sem landsmönnum var boðið upp á beinhreinsaðan útvatnaðan saltfisk í lofttæmdum umbúðum.
Árið 1994 fara fyrstu pokarnir af þessari vöru á markað á Spáni og samkvæmt útbreiddu blaði í Madrid, þar sem Siggi Hall þeirra Madridbúa, eldaði hann og sagði að þetta væri sennilega besti saltfiskur sem hægt væri að fá á Spáni. Fyrirtækið hefur undanfarin ár lagt í mjög fjárfrekar kynningar þar í landi.
Allar götur síðan hefur verið flutt á Spán í misjafnlega miklu magni, það var reyndar aldrei ætlunin að flytja út í miklu magni heldur selja hágæða vöru til þess hóps sem setur ekki verð fyrir sig.

Árið 1997 er fyrirtækið fyrst til að bjóða veitingahúsum staðlaðar saltfisksteikur að hætti Spánverja og eru mörg bestu veitingahús landsins nú orðnir fastir áskrifendur að saltfiskinum frá Ektafiski.

Í upphafi árs 2006 var sú ákvörðun tekin að setja á markað tilbúna saltfiskrétti, sem aldrei hefur verið gert áður hér á landi, fyrst fyrir stóreldhús og mötuneyti, og síðar fyrir almenna neytendur.
Keypt var hús á Hauganesi og því breytt í fullkomið eldhús sem stenst ströngustu kröfur í matvælavinnslu. Framleiðsla á tilbúnum réttum hófst í byrjun árs 2007 og þá ekki bara tilbúnum saltfiskréttum, heldur úr allskonar ljúffengu sjávarfangi.

Árið 2007 var ákveðið að víkka enn út starfsemina og huga að ferðaþjónustu sem er ört vaxandi atvinnugrein á landinu. Keypt var nýbyggt stórt sumarhús í Vaðlaheiði á móti Akureyri, Þar er frábært útsýni yfir Akureyri og inn Eyjafjörð.

Um er að ræða lúxus gistingu þar sem ekkert er til sparað svo gestum geti liðið vel.
Boðið er upp á þá nýjung hér á landi að gestir geta leigt glæsilegan Sóma hraðfiskibát með reyndum skipstjóra og fiskað sjálf í matinn í Eyjafirðinum, kíkt í skemmtiferð til Hríeyjar og jafnvel heilsað uppá hvali í leiðinni.

Þegar í land er komið er hluti af aflanum flakaður og roðflettur og sendur í fullkomið eldhús Ektarétta þar sem gerðir eru tilbúnir réttir í bakka sem eru síðan snæddir í sumarhúsinu.